Föstudagur, 26. desember 2008
Hvernig sparisjóðirnir urðu að markaðsvöru
Það gerðist rétt eftir síðustu aldamót, þegar sparisjóðir höfðu verið starfræktir með miklum sóma á Íslandi í yfir heila öld að þáverandi viðskiptaráðherra Valgerður Sverrisdóttir stóð frami fyrir því verkefni að endurnýja löggjöf um starfsemi fjármálafyrirtækja á Íslandi. Þá höfðu heyrst raddir sem sögðu að sparisjóðirnir væru gamaldags, þá ætti enginn og því ættu þeir ekki rétt á sér í hinu nýja markaðssamfélagi sem íslensk stjórnvöld voru langt komin með að búa til. Pétur Blöndal fór þar fremstur í flokki og fór mikinn í baráttu sinni fyrir því að stofnfjáreigendum yrði færðir sparisjóðirnir til eignar. Pétur var sjálfur stofnfjáreigandi, auk þess sem hann var í vinnu hjá Búnaðarbankanum og hafði það eina verkefni að koma í framkvæmd yfirtöku bankans á SPRON. Á sama tíma sat Pétur á Alþingi þar sem hann átti að gæta almannahagsmuna. Eftir á er óhætt að segja að Pétur hafi í þessu máli fyrst og síðast barist fyrir þröngum sérhagsmunum. Það er umhugsunarefni fyrir íslenska þjóð hvernig slíkt gat gerst og það beint fyrir framan nefið á okkur. Forseti þingsins gaf ekkert fyrir gagnrýni á störf Péturs, heldur þvert á móti veitti honum sérstakt hæfisvottorð í málinu. Forseti þingsins var frændi Péturs, Halldór Blöndal.
En Valgerður stóð frami fyrir því verkefni að koma í veg fyrir að sparisjóðirnir yrðu undir í baráttunni við Pétur og félaga og tryggja að tilveru þeirra væri ekki ógnað. Hún þurfti þar að berjast við sterk öfl fjármálalífsins sem fengu stöðuga glýju í augun vegna allra þeirra fjármuna sem sjóðirnir bjuggu yfir. Viðskiptaráð gekk í lið með sínum mönnum og birti fjöldan allan af ritum og ræðum sem fjölluðu um það hvernig þjóðarhag yrði best borgið með því að leggja niður gamaldags sparisjóðakerfi og innlima þær eignir sem þar voru í hina nýeinkavæddu banka. Á þessum árum var það ekki til siðs að íslensk stjórnvöld færu gegn skoðunum Viðskiptaráðs og því var Valgerður í nokkrum vanda. Hún var Framsóknarkona af eldri gerðinni, samvinnuhugsjónin henni í blóð borin og sparisjóðirnir voru að vissu leyti af þeim toga.
Valgerður gat ekki tekið ákvörðun sem var ekki fjármálaheiminum og Pétri þóknanleg, hún gat ekki slegið um sparisjóðina þá skjaldborg sem þörf var á með því að skera úr um að stofnfjáreigendum væri ekki heimilt að selja hluti sína á yfirverði. Með því hefði hún komið í veg fyrir það sem síðar gerðist. Þess í stað fór hún þess á leit við Pál Hreinsson þáverandi kennara við lagadeild Háskóla Íslands að hann semdi lögfræðiálit, þar sem fjallað yrði um stöðu stofnfjáreigenda og þeirri spurningu svarað hvort þeim væri heimilt að selja hluti sína á frjálsum markaði. Páll varð við beiðni Valgerðar og skilaði henni niðurstöðu sem var fjármálaheiminum að skapi. Páll komst að þeirri einkennilegu niðurstöðu að það stríddi gegn eignarréttarákvæðum stjórnarskrárinnar að setja hömlur á frjálsa sölu stofnfjárhluta í sparisjóðum. Að þessari niðurstöðu komst Páll þrátt fyrir að stofnfjáreigendurnir hefðu aldrei greitt fyrir hluti sína með það í huga að þeim fylgdu slík réttindi, þrátt fyrir að samþykktir sjóðanna kvæðu skýrt á um að stofnfjáreign fylgdi engin bein eignarréttindi yfir sparisjóðunum, þrátt fyrir að um væri að ræða aldargamlar stofnanir sem alla tíð hefðu verið reknar sem sjálfseignarstofnanir í eigu almennings. Páll lagði ofuráherslu á eignarréttindi einstaklinga umfram eignarréttindi almennings, líkt og þau ættu ekki undir neinum kringumstæðum rétt á sér. Í áliti hans fólst sterk pólitísk rétthugsun í anda þeirrar stefnu sem þáverandi stjórnarherrar vildu innleiða í íslenskt samfélag.
Á grundvelli þessa umdeilda álits var lögum um fjármálafyrirtæki breytt og í fyrsta sinn í yfir hundrað ára sögu sparisjóðanna var tilveru þeirra raunverulega ógnað að hálfu löggjafans. Ekki var leitað til neinna annarra en Páls eftir álitsgerð vegna þessa máls og nær allir sem komu að gerð frumvarpsins byggðu starf sitt á niðurstöðum Páls. Það voru reyndar örfáir þingmenn sem bentu á að álitsgerðin væri byggð á vafasömum forsendum og fráleitt væri að ætla að byggja heildarendurskoðun svo mikilvægrar löggjafar á því einu saman. Á meðal þeirra sem voru í þeim fámenna hópi voru þeir Guðmundur Árni Stefánsson og Ögmundur Jónasson.
Og nú á að rannsaka hrunið, aðdraganda þess að íslensku samfélagi var stefnt í þann voða sem við höfum nú fengið að upplifa forsmekinn af. Nú á að rannsaka hvernig það gat gerst að hér fengju sjónarmið græðgði og þröngra sérhagsmuna að ryðja burt allri samfélagslegri hugsun, þar sem öll áhersla var lögð á mikilvægi eignarrétt einstaklinga yfir samfélagslegum eignum. Og sá sem er valinn til að stýra þeirri mikilvægu skoðun er enginn annar en Páll Hreinsson.
Gangi þér vel Páll.
Bloggvinir
-
Ágúst Ólafur Ágústsson
-
Árni Rúnar Þorvaldsson
-
Ár & síð
-
Birgir Örn Birgisson
-
Bjarni Harðarson
-
Björgvin Guðmundsson
-
Björn Bjarnason
-
Brynjar Jóhannsson
-
Dofri Hermannsson
-
Dögg Pálsdóttir
-
Einar Kristinn Guðfinnsson
-
Eiríkur Bergmann Einarsson
-
Evrópusamtökin, www.evropa.is
-
Eygló Þóra Harðardóttir
-
Eyþór Arnalds
-
Friðrik Óttar Friðriksson
-
Friðrik Þór Guðmundsson
-
Gaukur Úlfarsson
-
Gerður Pálma
-
Gestur Guðjónsson
-
Gísli Tryggvason
-
Guðjón Baldursson
-
Guðmundur Bogason
-
Guðmundur Steingrímsson
-
Guðni Gíslason
-
Guðríður Arnardóttir
-
Guðrún Katrín Árnadóttir
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Hallur Guðmundsson
-
Hallur Magnússon #9541
-
Heidi Strand
-
Heiða B. Heiðars
-
Heimir Hannesson
-
Helena Mjöll Jóhannsdóttir
-
Helgi Jóhann Hauksson
-
Himmalingur
-
Hinrik Þór Svavarsson
-
Hjalti Már Björnsson
-
Hlini Melsteð Jóngeirsson
-
Ingimar Ingimarsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Jenný Anna Baldursdóttir
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Kolbrún Jónsdóttir
-
Konráð Ragnarsson
-
Kristín Dýrfjörð
-
Kristján Logason
-
Leifur Björn Björnsson
-
Líf Magneudóttir
-
Lúðvík Júlíusson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Sema Erla Serdar
-
Sigurður Eðvaldsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Steinar Immanúel Sörensson
-
Sveinn Arnarsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valgerður Halldórsdóttir
-
Vefritid
-
Vilborg G Hansen
-
Þórður Björn Sigurðsson
-
Þórólfur S. Finnsson


Athugasemdir
Og hefur Samfylkingin lagt sína blessun yfir Pál þennan Hreinsson - í embættið ? Ef svona er komið þá eru mál í verri farvegi en svartasti grunur hefur bankað uppá...
Sævar Helgason, 26.12.2008 kl. 17:28
Góður ertu ævinlega. Þarf ekki að fara að koma upp gagnabanka almennings yfir upplýsingar eins og þessar? Allt á einum stað svo auðvelt sé að fletta upp mönnum og málefnum?
María Kristjánsdóttir, 26.12.2008 kl. 17:32
Mjög fróðleg og góð grein hjá þér Gunnar Axel.
En segðu mér eitt nú eruð þið jafnaðarmenn við stjórnvölinn. Getur þú ekki beytt þér fyrir því að vinnubrögðunum sé eitthvað breytt.
Þetta er alveg dæmigert fyrir þessa dáðlausu Ríksstjórn leyndar- og pukurs að skipa nú þennan mann sem aðal ransakanda á bankahruninu.
Þetta væri svona eins og að skipa Kristján Ragnarsson fyrrverandi LÍÚ formann sem rannsakanda á spillingu kvótakerfisins.
Það er ekki ein báran stök í vitleysunni og það er ekki á dáðlausa forystu Samfylkingarinnar logið í þessum efnum !
Gunnlaugur Ingvarsson (IP-tala skráð) 26.12.2008 kl. 17:32
Vont var að missa þann góða dreng Guðmund Árna af þingi. Þeir hefðu getað myndað öfluga jafnaðarmanna ríkisstjórn saman Ögmundur og Guðmundur Árni enda miklir vinir.
Doddi (IP-tala skráð) 26.12.2008 kl. 17:33
Og nú er KPMG farið að vinna í Landsbankanum samkvæmt mínum heimildum. Sjá mbl.is bloggið mitt.
Góð samantekt hjá þér að venju.
Jónína Benediktsdóttir, 26.12.2008 kl. 17:38
Gunnar Axel, mér hefur verið tjáð, að einstaklingarnir sem skráðir voru fyrir stofnfjárhlutum í SpH hafi eingöngu verið skráðir fyrir þeim formsins vegna. Þeir lögðu aldrei eyri í sjóðinn, heldur voru það Hafnfirðingar sem greiddu stofnfjárhlutinn. Þar sem ekki var hægt að skrifa "Hafnfirðinga" fyrir hlutunum, þá voru fundnir traustir Hafnfirðingar og þeir skráðir. Mér finnst að þetta sé nokkuð áhugaverð ábending inn í þessa umræðu. Ef þetta reynist rétt, þá var sala þessara aðila á stofnfé "sínu" í SpH ekkert annað en þjófnaður, þar sem þeir voru að selja hluti sem voru í reynd í eigu Hafnfirðinga allra, ekki bara nafngreindra einstaklinga, sem skráðir voru fyrir hlutunum, þar sem lög um sparisjóði leyfðu ekki að bæjarfélagið Hafnarfjörður væri skráð fyrir stofnfénum.
Ég hef engin ráð til að staðfesta þetta eða rengja, en hvet þig til að skoða þetta betur. En reynist þetta rétt, þá skil ég vel alla leyndina sem hvíldi yfir öllu sem viðkom SpH á sínum tíma. A.m.k. ætti að vera hægt að fletta þessu öllu upp, m.a. í fundargerðum bæjarstjórnar Hafnarfjarðar í gegnum tíðina.
Marinó G. Njálsson, 26.12.2008 kl. 20:25
Þakka þér kærlega fyrir þessa grein. Vissi að eitthvað var gruggugt við Sparísjóðina, en vissi ekki að "hlutlaus" prófessor við HÍ hefði verið notaður til að réttlæta svindlið.
Þetta mál minnir óneitanlega á hið svo kallaða Torture Memo mál, þar sem Bush og hans pótintátar réðu lagaprófessor við Berkeley háskóla,
mann að nafni John Yoo, til að leggja blessun sína yfir pyntingar Bush strjórnarinnar á föngum. John Yoo réttlætti glæpinn með hæpnum lagalegum rökum. Síðan hlutur prófessor John Yoo í þessu máli varð ljós hafa verið uppi háværir raddir um að hann víkji úr starfi sem prófessor.
Visslulega er líkamlegar pyntingar eitt og fjárstuldur annar, en Páll Hreinsson á það sameiginlegt með John Yoo, að hafa í krafti mennturar sinnar og stöðu réttlætt glæp opinberra valdaaðila.
Og nú hefur Páll verið verðlaunaður fyrir framlag sitt og nýtur óbilandi trausts íslenskra yfirvalda.
Frekari upplýsingar um The Torture memo má finna á þessari slóð
http://www.thenation.com/doc/20080428/gillers
Inga Dóra Björnsdóttir (IP-tala skráð) 26.12.2008 kl. 20:32
Þakka þér kærlega fyrir þennan fróðleik. Það ríður ekki við einteyming lánleysi og dáðaleysi þessarar ríkisstjórnar. Ingibjörg Sólrún hefur brugðist okkur "big time" - sjálfstæðismenn eru samir við sig, það vitum við.
Þessi þvottadeild ríkisstjórnarinnar ásamt þessum Páli er bara brandari og þeim öllum til vansa.
Við vitum öll fyrirfram að niðurstaðan verður engin.
ÞA (IP-tala skráð) 26.12.2008 kl. 21:21
Haltu áfram á þessarri snörpu greiningarleið Gunnar Axel. Við þurfum að leggja þér lið hinir eldri og finna fyrir þig lausu endana. Kannski eru einhverjir Hafnfirðingar sem muna hvernig "val á stofnfjáreigendum fór fram" í sinni tíð - - og áður en fundið var upp á því að þeir gætu farið með sparisjóðinn sem sína einkaeign . . . út í gegn.
Benedikt Sigurðarson, 26.12.2008 kl. 22:10
Sæll nafni,
mjög góð og athyglisverð færsla. Mjög fróðlegt að rifja upp forsögu Páls í starfi og pólitík. Hann er orðinn einn mikilvægasti maður Íslands í dag. Það virðist vera að hann sé samofinn Sjálfstæðisflokknum og frjálshyggjuhugmyndum hans. Hvernig á hann að geta metið hlutina á gagnrýninn og hlutlausan hátt??Gunnar Skúli Ármannsson, 26.12.2008 kl. 22:59
Flott grein.
Þessu átti maður svo sem von á frá Sjöllunum en hélt að Jóhanna léti ekki bjóða sér upp á svonalagað. Þetta er mikið mikið meira en við jafnaðarmenn getum þolað. Nú verðu einhver að fara taka til hendinni.
Rúnar (IP-tala skráð) 26.12.2008 kl. 23:02
Landráð og þjófnaður.
Nú er hægt að gefa út ákæru,finndu mann til að gera það. A.S.A.P
Fyrir mér er þetta nægilegt fyrir ákæru á hendur þessara þingmanna.
Og í minnsta lagi skilyrðislaus brottrekstur.
Það gengur ekki að svona menn og konur starfi áfram á þingi.
Það á að vera lögregglubíll fyrir utan Alþingi næst þegar þeir ætla að reyna að svíkja sig áfram í lífinu undir hempu embættis síns.
Ég held bara að íslenska þjóðin ætti að sameinast um að umkringja alþingishúsið áður en þau reyna að svíkja almenning meira.
Vilhjalmur Arnason (IP-tala skráð) 26.12.2008 kl. 23:15
Landráð og þjófnaður.
Nú er hægt að gefa út ákæru,finndu mann til að gera það. A.S.A.P
Fyrir mér er þetta nægilegt fyrir ákæru á hendur þessara þingmanna.
Og í minnsta lagi skilyrðislaus brottrekstur.
Það gengur ekki að svona menn og konur starfi áfram á þingi.
Það á að vera lögregglubíll fyrir utan Alþingi næst þegar þeir ætla að reyna að svíkja sig áfram í lífinu undir hempu embættis síns.
Ég held bara að íslenska þjóðin ætti að sameinast um að umkringja alþingishúsið áður en þau reyna að svíkja almenning meira.
Vilhjálmur Árnason, 26.12.2008 kl. 23:24
Einstakt blogg! Takk fyrir það.
veffari, 27.12.2008 kl. 02:51
Þú stendur þig vel!
Það er ekki einleikið hvað allt sem gert er þessa dagana virðist vera umlukið spillingu og pukri. Það þarf að koma þessu fólki frá.
Héðinn Björnsson, 27.12.2008 kl. 13:09
Takk fyrir þínu upplýsandi skrif. Er sammála Maríu Kristjáns um að það þurfi að halda svona upplýsingum til haga.
Gleymum ekki að Matthías Á. Mathiesen og synir hans Árni Mathiesen voru svonefndir stofnfjáreigendur í Sparisjóði Hafnarfjarðar.
Það væri fróðlegt að skoða fundargerðir bæjarstjórnar frá því 2003 - en ég man eftir fréttaflutningi frá þessum fundum. Þar virtist allt loga í ráðleysi!
Alma Jenny Guðmundsdóttir, 27.12.2008 kl. 14:04
Mjög góð grein hjá þér og athyglisverð og vekur til umhugsunar um hvernig nýfrjálshyggjan breiddist út án þess að fólk áttaði sig almennilega á því. Páll hafði með ályktunum sínum smitast af gildismati sem var allsráðandi, líka innan Háskóla í öllum matskerfum sem þar byggðust upp á síðasta áratug - þó sögulegar forsendur væru aðrar. Mér finnst reyndar einnig athyglisvert þegar þú segir að Valgerður hafi ekki getað tekið ákvörðun sem ekki þóknaðist fjármálageiranum og Pétri, sem bendir til þess að það sé almennt viðtekin sátt um það að ráðherrar séu í vasanum á sérhagsmunahópum og atvinnurekendum. Það er ég ekki sátt við en hef auðvitað séð eins og fleiri aðrir kjósendur á Íslandi slíkt atferli vaða uppi, og enginn gerði athugasemd við það. Því miður.
Anna Karlsdóttir (IP-tala skráð) 28.12.2008 kl. 12:29
Einhverntíma og þá vonandi ekki of seint þarf íslenska þjóðin að fá að vita hver bar ábyrgðina á hruninu, það verður stór spurning á borðum sagnfræðinga framtíðarinnar myndi ég telja.
Til að ná fram að ganga þarf nýfrjálshyggjan hins vegar stjórnmálaflokk sem er tilbúinn til að afneita þessu barni sínu þegar honum hentar svo. Gengst t.d. einhver stjórnmálaflokkur við því í dag að bera ábyrgð á þeirri stefnu sem leiddi til hruns banka- og fjármálakerfisins á Íslandi? Hefur einhver lýst yfir pólitískri ábyrgð á hruninu?
Íslendingar verða að gera upp við sig áður en langt um líður hvar skyldleikinn liggur og þar með líka hvoru meginlandinu þeir vilja tilheyra í framtíðinni ?
Jóhann (IP-tala skráð) 28.12.2008 kl. 14:24
Íslenska þjóðin þarf að fara að taka ábyrgð á sjálfri sér. Ríkisstjórn Íslands er egrspillt og hefur lagt blessun sína yfir allan þann ósóma sem á henni hefur dunið en ÞAÐ ER GERT MEÐ SAMÞYKKI ÞJÓÐARINNAR?
ER ENGINN ÞARNA ÚTI SEM SKILUR ÞAÐ AÐ RÍKISTJÓRN ÞESSA LANDS STARFAR Í UMBOÐI OKKAR SEM ERUM AÐ SKRIFA FRÁ OKKUR ALLT VIT OG AÐHÖFUMST EKKERT Í MÁLINU.
TAFARLAUS UTANAÐKOAMDNI RANNSÓKN ÞARF AÐ HEFJAST STRAX, HÉR RÍKIR STRÍÐSÁSTAND OG RÍKISSTJÓRN ÍSLANDS Á EKKI AÐ FÁ AÐ STARFA LENGUR. ÞJÓÐIN RÆÐUR ÞVÍ, HÚN ER ATVINNUREKANDI ÞEIRRA LANDRÁÐSMANNA SEM STARFA ENN Í UMBOÐI ÞJÓÐARINNAR. RÍKISSTJÓRNIN VÍKJI NÚ ÞEGAR! EF EKKI SJÁLF ÞÁ VERÐUR HÚN TEKIN ÚR UMFERÐ MEÐ VALDI.
FÓLK ER BÚIÐ AÐ FÁ NÓG OG ÞETTA ENDAR EINGÖNGU MEÐ SKELFINGU ANNARS. LESIÐ BUIETERSKÝRSLUNA !
ÞAR SEGIR NORSKUR SÉRFRÆÐINGUR SL. VOR AÐ AÐRA EINS SPILLINGU OG SKELFINGU HAFI HANN VART SÉÐ ÁÐUR OG AÐ ÞAÐ EINA SEM HANN GETI RÁÐLAGT ÍSLENSKU ÞJÓÐINNI ER AÐ BIÐJA TIL GUÐS? HVENÆR ÆTLAR FÓLK AÐ HÆTTA AÐ AFNEITA ALVARLEIKANUM OG TAKA ÁBYRGÐ Á MÁLUNUM AF ALVÖRU? HÆTTA AÐ LÁTA EINS OG EKKERGT SÉ? ÞEGAR ELDAR LOGA UM ALLT OG FÓLK SVELTUR - ÆTLA MENN FYRST ÞÁ AÐ BRETTA UPP ERMARNAR ÞEGAR ÞAÐ ER ORÐIÐ OF SEINT? ÞJÓÐIN ER BÚIN AÐ VERA EF ÞETTA HELDUR SVONA ÁFRAM!
S.P.R (IP-tala skráð) 28.12.2008 kl. 14:44
Góð grein, hvað svo
Mér líst þannig á að stjórnmálamennirnir okkar séu upp til hópa samsekir um að hafa veigrað sér við að taka ákvarðanir útfrá þjóðarhagsmunum og látið frændur og vini ráða för, taka ákvarðanir fyrir sig.
Ér sammála Maríu Kristjáns um að það þurfi að koma upp gagnabanka og einhverskonar eftirliti með ráðamönnum og venslaneti þeirra.
Stefán Á. Guðmundsson (IP-tala skráð) 30.12.2008 kl. 01:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.